Iris reticulata

Ættkvísl
Iris
Nafn
reticulata
Íslenskt nafn
Voríris*
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Lífsform
Fjölær - laukur.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Dökkfjólublá með gula hryggi.
Blómgunartími
Maí.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Þetta er Reticulata-íris. Laukar perulaga með netæðótt laukhýði og myndar hliðarlauka að blómgun lokinni.
Lýsing
Laufin ferhyrnd, mjög mjó, allt að 30 x 0,2 sm, Blóm og lauf birtast á sama tíma, eða blómin koma á undan laufunum. Blómin stök, legglaus, dökk fjólublá til fölblá til rauð-purpura, pípan 4-7 sm, bikarblöð 5 sm, oft með gula hryggi, mjósti hlutinn 2,5 sm, fánar uppréttir, öfuglensulaga, 6 sm.
Uppruni
Tyrkland, Írak, Íran, Rússland
Heimildir
= 1
Fjölgun
Laukar eru settir niður að hausti (í september) á um 8-10 sm dýpt og einnig er þá hentugur tími til að skýla þeim laukum eftir því sem við á.
Notkun/nytjar
Inn á milli lágra sígrænna runna, í steinhæðir.
Reynsla
Ræktuð líkt og túlípanar, laukar settir niður í þyrpingar í runnabeð. Þarf stundum að endurnýja á nokkurra ára fresti. Tryggara að skýla með mosa og laufi yfir veturinn.