Iris variegata

Ættkvísl
Iris
Nafn
variegata
Íslenskt nafn
Trúðaíris
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól til hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur, hvítur til gulur með rauðbrúnar æðar.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
30-45 sm
Vaxtarlag
Skegg-íris með jarðstöngla, 20-50 sm hár. Stönglar greinóttir.
Lýsing
Lauf dökkgræn, sverðlaga, með rifjum, allt að 30 x 3 sm. Blómin 3-6, 5-8 sm í þvermál, stoðblöð útblási, með græn-purpura slikju, pípan allt að 2,5 sm, bikarblöð öfugegglaga, 2 sm breið, baksveigð, hvít til ljósgul með rauð-brúnar æðar, skeggið skærgult, fánar aflangir, uppréttir, skærgulir, greinar stílsins gulir.
Uppruni
M & SA Evrópa.
Heimildir
= 1, https://en.wikipedia.org/wiki/Iris_variegata, http://www.missouribotanicalgarden.org/PlantFinder/PlantFinderDetails.aspx?taxonid=281141&isprofile=0&
Fjölgun
Skipting, sáning.
Reynsla
Þessi gullfallega planta hefur reynst harðgerð í Grasagarði Reykjavíkur og verður væntanlega eftirsótt garðplanta í framtíðinni (H. Sig.).