Jovibarba heuffelii

Ættkvísl
Jovibarba
Nafn
heuffelii
Íslenskt nafn
Ljósahnyðri
Ætt
Hnoðraætt (Crassulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fölgulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Blaðhvirfingar 3-7 sm í þvermál, flatar, opnar. Laufin 30-40 í hverri blaðhvirfingu, misstór, flöt ofan, kúpt neðan, græn eða bláleit, stundum með brúna enda, fínhærð.
Lýsing
Stöngullauf lykja um stöngulinn, lensulaga, efri hlutinn með purpura slikju. Blómskipunin þétt, flöt, 5 sm í þvermál, blómin mjó, 12-15 mm breið, bikarblöð 6-7, kirtilhærð, krónublöð 6-7, upprétt, fölgul eða gulhvít, 10-12 mm, öfugegglaga-aflöng.
Uppruni
A Karpatafjöll, Balkanskagi.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta.
Reynsla
Meðalharðgerð jurt, blaðhvirfingin deyr að blómgun lokinni.
Yrki og undirteg.
Til eru yfir 100 nefnd yrki.