Jovibarba hirta

Ættkvísl
Jovibarba
Nafn
hirta
Íslenskt nafn
Skegghnyðri
Ætt
Hnoðraætt (Crassulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fölgulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
10-15 sm
Vaxtarlag
Blaðhvirfingar 2,5-5 sm í þvermál, opin nema þegar hún er þurr.
Lýsing
Laufin 8-10 x 7 mm, hárlaus, randhærð, flöt ofan, kúpt neðan, græn, oddurinn brúnn eða rauðbrúnn neðan, lensulaga til öfugegglaga-öfuglensulaga. Blómstöngull mjög laufóttur. Blómskipunin 5-8 sm í þvermál, greinótt, hver grein með 5-blóm, blómin fölgulbrún, bikarblöð oftast hærð, krónublöð 6, upprétt, um 15 mm löng með vængjaðan kjöl. Stíll um 4 mm.
Uppruni
M & SA Evrópa.
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta.
Reynsla
Töluvert viðkvæmari en húslaukar og oft fremur skammlíf í ræktun. Blaðhvirfingin deyr að blómgun lokinni.