Juniperus communis

Ættkvísl
Juniperus
Nafn
communis
Íslenskt nafn
Einir
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Karlblóm gulleit.
Blómgunartími
Apríl-júní.
Hæð
0,5-1,5 m
Vaxtarlag
Yfirleitt margstofna runni hérlendis en getur orðið tré, allt að 15 m hátt erlendis.
Lýsing
Mjög breytileg tegund í útliti. Börkur sléttur í fyrstu, trosnar seinna, grábrúnn. Ársprotar 3-kantaðir, með langsum listum. Barr nállaga, 3-15 mm löng og 1-2 mm breið, bein, yfirleitt grágræn að ofan með grunna rennu og með breiða hvíta rák, jaðrar grænir. Yfirleitt tvíbýlis blóm. Aldin verða fullþroska á 2. eða 3. ári, kúlulaga til næstum egglaga græn á 1. ári og að lokum hvítblá, döggvuð. Fullþroska eru þau svört og 6-9 mm í þvermál, leggstutt, fræ allt að 3, laus hvert frá öðru.
Uppruni
Evrópa, N Asía til N Kína, N Afríka, N Ameríka.
Harka
3
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sumargræðlingar, sáning, haustgræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í steinhæð, sem stakstæður runni.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til nokkrar plöntur sem ræktaðar hafa verið upp af erlendu fræi. Sáð var til þeirra 1986, 1992, 1993, 1997, 2007. Margar þeirra eru mjög fallegar, þótt þær sólbrenni stundum að vorinu. Þrífast vel og þroskar fræ.Einir er harðgerður og algengur um allt Ísland. Skýla þarf plöntum í uppeldi og á erfiðum stöðum.
Yrki og undirteg.
Fjölmörg yrki í ræktun t.d. 'Oskeladden' norsk sort með bláleitt barr ofl.