Juniperus squamata

Ættkvísl
Juniperus
Nafn
squamata
Yrki form
'Meyeri'
Íslenskt nafn
Himalajaeinir
Ætt
Sýprisætt (Cupressaceae).
Lífsform
Sígrænn runni - lítið tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Karlblóm gulleit.
Hæð
1-3 m (-6m)
Vaxtarlag
Enginn dvergrunni! Nær 5-6 m hæð erlendis eða meir, yfirleitt þá með einn aðalstofn.
Lýsing
Gamlar greinar uppréttar og stuttar, yngri greinar uppsveigðar. Ársprotar með mjög þéttar nálar, rauðbrúnir, sprotaendarnir bognir. Barr mjólensulaga, 6-10 mm langt, allt að 1,5 mm breið, mjög þéttstætt, beint, áberandi bláhvítt. Aldin lang-egglaga, 5-6 mm langt, djúpbrúnt og að lokum svart og döggvað.
Uppruni
Yrki
Harka
5
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sumargræðlingar, síðsumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð, nátturulega garða.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem keyptar voru 1995 og ein sem keypt var 2000. Yfirleitt lítið eða ekkert kal, fallegar plöntur sem þrífast vel. Hefur reynst þokkalega bæði sunnanlands og norðan.