Lamium maculatum

Ættkvísl
Lamium
Nafn
maculatum
Íslenskt nafn
Dílatvítönn
Ætt
Varablómaætt (Lamiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi, sól.
Blómalitur
Rauður til purpura.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
20-60 sm
Vaxtarhraði
Meðal vaxtarhraði.
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 80 sm há. Stönglar uppsveigðir til útafliggjandi eða renglóttir, dúnhærðir.
Lýsing
Lauf allt að 9 X 7 sm, egglaga eða tígullaga til hálfkringlótt, grunnur hjartalaga eða þverstýfð, jaðar skörðóttur, lauf dúnhærð, hvítrákótt, laufleggur allt að 5,5 sm. Blóm í 4-5 krönsum, 4-8 blóma, strjál, stoðblöð allt að 3 x 3 mm, kringlótt til egglaga. Bikar allt að 16 mm, dúnhærð, tennur allt að 1 sm. Krónan rauð til purpura, sjaldan hvít, pípan allt að 2 sm, bogin, hringur innan í henni dúnhærður, efri vörin allt að 13 mm, sú neðri allt að 6 mm, öfughjartalaga, hliðarflipar allt að 2 mm, oddur sýldur. Efri mynd af Lamium maculatum 'Roseum'
Uppruni
Evrópa, N Afríka til V Asíu.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, sem undirgróður, í þekju.
Reynsla
Fín steinhæðarplanta en þrífst best í litlum skugga (H. Sig.).
Yrki og undirteg.
'Aureum'er með silfruð blöð og mjórri grænni rönd, fjólubl. blóm, 'Beacon Silver' alsilfruð blöð + mjó græn rönd, rauðfjólublá, 'Roseum' rósrauð, 'Album' hvít með silfurlit blöð.