Larix decidua

Ættkvísl
Larix
Nafn
decidua
Ssp./var
ssp. polonica
Höfundur undirteg.
(Racib.) Domin
Íslenskt nafn
Evrópulerki
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Lífsform
Lauffellandi barrtré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Karlblóm gul, kvenblóm purpurarauð.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
6-10 m
Vaxtarlag
Lauffellandi tré, allt að 30 m hátt í heimkynnum sínum. Krónan mjög mjó. Smágreinar föl-sinugular til hvítar, grannar, hangandi. Millibilsform milli evrópulerkis (L. rossica/L. decidua) og síberíulerkis (L. russica). Er á undanhaldi í náttúrunni.
Lýsing
Könglar minni, 1-2,8 sm, snubbóttari en á aðaltegundinni (minna mjög á köngla síberíulerkis), hreistur íhvolf. Könglar ljósbrúnir þegar þeir eru ungir. Köngulhreistur bogadregnari en á aðaltegundinni, ekki eins framjöðruð og flókahærð.
Uppruni
Pólland, NV Úkraína.
Harka
Z4
Heimildir
= 1,7
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þesu nafni sem sáð var til 2002, er í sólreit 2013.