Larix lyallii

Ættkvísl
Larix
Nafn
lyallii
Íslenskt nafn
Fjallalerki
Ætt
Þallarætt (Pinaceae)
Lífsform
Lauffellandi barrtré.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Kvenblóm bleik, karlblóm gul.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
10-15 m
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Lauffellandi tré, 13-15(-25 ) m hátt í heimkynnum sínum. Börkur grár og losnar af í hreistrum, eða rauðbrúnn og rákóttur á gömlum trjám. Greinar standa óreglulega, eru láréttar, stuttar, brothættar. Greinar á 1. ári með þétt grátt eða grábrúnt hár, hárlausar á 2. ári. Dverggreinar 1-2 sm langar, þaktar gráum eða gulbrúnum flóka. Vetrarbrum kúlulaga, brúnar brumhlífarnar, þétthærðar.
Lýsing
Barrnálar 40-50 í knippi, uppréttar til útstæðar, 25-35 mm langar, blágrænar, stinnar, með kjöl beggja vegna. Blómin eru tvíkynja (eru bæði með karlkyns og kvenkyns líffæri). Könglar alveg legglausir, lang-egglaga 3,5-5 sm langir, 2 sm breiðir, ungir bleikir. Köngulhreistur mörg næstum kringlótt, hærð utan, fullþroska eru þau sundurglennt og jaðar aftursveigður. Hreisturblöðkur uppréttar, langyddar, stundum líka aftursveigðar, standa út úr könglunum. Jaðar fagurlega randhærður. Fræ smá með bleikan væng um 10 mm langan.
Uppruni
V N-Ameríka (Washington til Bresku Kólumbíu). (1500-3100 m h.y.s.).
Sjúkdómar
Plöntur af þessari ættkvísl eru með mikinn viðnámsþrótt gegn hunangssvepp.
Harka
Z3 Ekki viðkvæmt fyrir frosti.
Heimildir
= 1, 7, http://www.pfaf
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í raðir, þyrpingar, í beð, skógrækt og sem stakstætt tré.Gróðursett til timburframleiðslu í Evrópu. Greinaendarnir eru sumstaðar notaðir til að krydda súpur.
Reynsla
Var til í Lystigarðinum, en varð að víkja fyrir byggingu, þreifst vel.