Larix occidentalis

Ættkvísl
Larix
Nafn
occidentalis
Íslenskt nafn
Risalerki
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Lífsform
Lauffellandi barrtré.
Kjörlendi
Sól. Þrífst ekki í skugga.
Blómalitur
Karlblóm gul, kvenblóm græn, rauðleit eða purpura.
Blómgunartími
Vor .
Hæð
6-10 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, mjög hávaxið tré, 40-45(-80) m í heimkynnum sínum. Bolur 1,3-1,7 m í þvermál. Börkur gamalla trjáa kanelbrúnn og með djúpum grópum. Á ungum trjám er börkurinn dökkgrár til brúnn, dettur af í þunnum hreistrum. Króna mjókeilulaga. Greinar fremur stuttar, næstum láréttar, útstæðar. Ársprotar eru gulleitir til appelsínubrúnir, rákóttir með hæringu í rákunum en verða fljótlega hárlausir. Dverggreinar stuttar, kastaníubrúnar. Vetrarbrum keilulaga, dökkbrún, dálítið kvoðug, brumhlífar hærðar og kögraðar.
Lýsing
Barrnálar 15-40 í knippi á dverggreinunum, útstæðar, 25-40(-50) mm langar, stinnar, grágrænar, hvassyddar, að neðan með 2 hvítar loftaugarendur og kjöl, en bogadregnar ofan. Blómin eru einkynja (hvert einstakt blóm annað hvort karlkyns eða kvenkyns), en bæði kynin er að finna á sama trénu. Karlreklar eru hnöttóttir til aflangir og gulir til gulgrænir, kvenreklar eru litlir, uppréttir og skærrauðir þegar þeir eru ungir. Vindfrævun. Könglar á 6 mm löngum, hærðum leggjum, egglaga, 25-35 mm langir, 25-30 mm breiðir. Köngulhreistur allt að 30-50 ,næstum kringlótt, 8-12 mm breið, jaðar efst ögn hærður að utan. Hreistur blöðkur lensulega, mjög framstæðar, uppréttar, með rófu. Fræ með brúnan væng, vængur og fræ samanlagt 6-8 mm langt.
Uppruni
Vestur N-Ameríka Breska Kólumbía til Montana suður til Washington og Oregon.
Sjúkdómar
Trén verða oft fyrir átu/sveppsjúkdómi erlendis og drepast, eru samt góð tré og geta verið mjög góð.
Harka
Z4 Ekki viðkvæmt fyrir frosti.
Heimildir
= 1, 7, http://dendro.cnre.vt.edu, http://www.pfaf
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í raðir, í beð, í þyrpingar. Ársvöxturinn mikill þegar þau eru ung. Gömul tré þróa mjög þykkan börk sem ver gegn skógareldum. Getur þolað hvassviðri en ekki saltúða.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1992.