Larix sibirica

Ættkvísl
Larix
Nafn
sibirica
Íslenskt nafn
Síberíulerki
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Samheiti
Larix russica og Larix sukaczewii, L. decidua v. rossica, L. sibirica Ledeb., L. intermedia Fisch. Ex Turcz.
Lífsform
Lauffellandi barrtré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Karlblóm gul, kvenblóm græn, rauðleit eða purpura.
Blómgunartími
Síðla vors.
Hæð
20-25 m (-30 m)
Vaxtarlag
Tré allt að 30 m í heimkynnum sínum, stofn grannur. Börkur er rauðbrúnn, hreistraður í fyrstu en seinna með djúpar rákir. Króna mjó og keilulaga. Greinar ungra trjáa uppréttar, en láréttar á gömlum. Ársprotar ljósgulir og gljáandi, rákóttir í byrjun nokkuð hærðir en verða fljótlega hárlausir. Dverggreinar mjög þéttstæðar.
Lýsing
Barrnálar 15-30 í knippi, 25-40 mm langar, grannar, næstum þráðlaga, mjúkar, dökkgrænar ofan með 2 loftaugarendur og með greinilegum kjöl að neðan og 2 loftaugarendur, hvor úr 2 loftaugaröðum. Laufgast þegar 2 vikum fyrr en allar aðrar lerkitegundir og fellir líka barrið fyrr. Könglar keilulaga, 2,5-4 sm langir, mjög leggstuttir, með um 30 köngulhreistur sem eru með brúnan flóka utan og hrímug, fremur þykk, leðurkennd. Jaðar köngulhreistranna bylgjaður og ögn innsveigður, fullþroska aðeins lítið eitt opin. Hreisturblöðkur alveg huldar. Fræ með 12 mm langan væng.
Uppruni
NA Rússland til V Síberíu.
Sjúkdómar
Hættir við haustkali með douglasátu í kjölfarið.
Harka
1
Heimildir
= 1, http:en.wikipedia.org, H.Kr. 2010 Íslenska plöntuhandbókin.
Fjölgun
Sáning. (Forkæling í að minnsta kosti 3 mánuði.)
Notkun/nytjar
Í limgerði, skjólbelti, skógrækt, sem stakstæð tré, í þyrpingar.
Reynsla
Allmörg gömul tré eru til í Lystigarðinum, þrífast vel. Einnig er til ein planta í sólreit sem var sáð til 2011. Harðgert tré, er í sambýli v. lerkisvepp Boletus elegans (sem framleiðir nítur) og gerir það lerkinu kleyft að þrífast í ófjóum jarðvegi - 50 kvæmi eða svo hafa verið reynd en 'Raivola' kvæmið frá Arkangelsk ber af. Algengasta skógarplanta landsins - ræktuð nánast um allt land. Síberíulerki hefur víða verið gróðursett hérlendis, einkum þar sem jarðvegur er magur. Það sáir sér mikið út frá ræktunarstöðunum.
Yrki og undirteg.
Larix russica sem nefnd hefur verið rússalerki hérlendis (syn.: Larix sukaczewii) tekur við af síberíulerki og vex vestur fyrir Úralfjöll - talin sama tegund og Larix sibirica í flestum heimildum en þó ekki öllum - ath. betur!!
Útbreiðsla
Síberíulerki er ræktað í Kanada og í norðurhluta Bandaríkjanna, en í litlum mæli, var fyrst ræktað þar 1806.Vex hraðar en mörg barrtré á köldum svæðum, en þarf mikið sólskin. Þegar tréð er ræktað í stórum útplöntunum þarf að vera gott bil á milli plantnanna og það þarf mikla grisjun.