Laserpitium halleri

Ættkvísl
Laserpitium
Nafn
halleri
Íslenskt nafn
Fjallaský
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Samheiti
(ekki í RHS ath Flore evrópa né IOPI)
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 100 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 15-60 sm há, neðst með trefjabrúsk. Stönglar yfirleitt ekki meira en 5 mm breiðir, fínrákóttir. Lauf grágrænt, leggstutt, þríhyrnd að ummáli, 2-3 fjöðruð, ystu smáblöð fjaðurskipt, með um 3 mm löngum, bandlaga endaflipa.
Lýsing
Sveipur með 15-40 geisla. Reifablöð og smáreifablöð randhærð, Bllómin hvít. Aldin aflöng, 5-9 mm löng með breiðum vængjuðum hryggjum.
Uppruni
Alpafjöll.
Sjúkdómar
Engir.
Heimildir
= HS, https://www.infoflora.ch,
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Stakstæð planta, í skrautblómabeð með öðrum fjölæringum, í sumarbústaðaland.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2004 og gróðursett í beð 2006, þrífst vel. Þolir illa umplöntun eftir að plantan hefur náð fullri stærð. Þolir vel þurrk þar sem rætur eru mjög djúpstæðar.