Lathyrus latifolius

Ættkvísl
Lathyrus
Nafn
latifolius
Íslenskt nafn
Skrautertur
Ætt
Ertublómaætt (Fabaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Rauðrófupurpura, bleikur eða hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 250 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 300 sm löng, stönglar jarðlægir eða klifrandi, með breiða vængi, gróf-dúnhærð, dúnmjúk eða hárlaus.
Lýsing
Lauf enda þrígreindum vafþráðum, axlablöð allt að 6 x 1 sm, lensulaga til egglaga, hálf-spjótlaga, með áberandi taugar, taugar liggja langsum. Smálauf allt að 15 x 5 sm, eitt par, bandlaga til oddbaugótt, hvassydd, þunn-broddydd í oddinn, blágræn, netæðótt. Klasar með langan legg, 5-15-blóma. Bikar breið-bjöllulaga. Króna allt að 3 sm í þvermál, rauðrófupurpura, bleik eða hvít. Aldin allt að 11 x 1 sm, brún, hárlaus, með 10-15 fræ.
Uppruni
S & M Evrópa, Rússland
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Klifurplanta á/við veggi, grindur og fleira.
Reynsla
Lítt reynd.
Yrki og undirteg.
'Roseus' og 'Snow Queen' eru sortir sem ræktaðar eru hérlendis.