Lathyrus vernus

Ættkvísl
Lathyrus
Nafn
vernus
Íslenskt nafn
Vorertur
Ætt
Ertublómaætt (Fabaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rauðfjólublár verður grænblár.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
20-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt sem myndar fallega blaðbrúska, allt að 60 sm háa, oftast lægri. Stönglar allmargir, uppréttir, hyrndir, ekki með væng.
Lýsing
Laufin enda í oddi, ekki gripþræðið. Axlablöð allt að 2,5 x 0,8 sm, egglaga-lensulaga, sjaldan bandlaga, hálf-örlaga. Smálauf allt að 10 x 3 sm, 2-4, egglaga til lensulaga, langydd, með ógreinilegar samsíða æðar. Klasar endastæðir eða axlastæðir, 3-15-blóma, allt að 25,5 sm. Bikar allt að 1 sm, hliðskakkur. Króna allt að 2 sm, rauðfjólublá í byrjun, verða grænblá. Aldin allt að 6 x 0,8 sm, brún, hárlaus með 8-14 fræ.
Uppruni
Evrópa (ekki allra nyrst).
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting eftir blómgun.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð.
Reynsla
Harðgerð, þrífst vel í Lystigarðinum og víðar í görðum.
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja er til í ræktun.