Lavendula angustifolia

Ættkvísl
Lavendula
Nafn
angustifolia
Íslenskt nafn
Kransvendill
Ætt
Varablómaætt (Lamiaceae).
Lífsform
Runni (hálfrunni).
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Fjólublár.
Hæð
40-70 sm
Vaxtarlag
Runni, 10-200 sm. Stönglar lóhærðir.
Lýsing
Laufin 2-6 x 0,6 sm, heil, lensulaga, aflöng eða bandlaga, lóhærð, grá meðan þau eru ung, verða græn með aldrinum. Öxin 2-8 sm, þau neðastu standa lóðrétt á hin, stoðblöð egglaga til breið öfugegglaga langydd eða broddydd, himnukennd, hárlaus eða stinnhærð, smástöðblöð mjög smá, bandlaga eða engin, krans með 6-10 blóm, bikar 4-7 mm með 13 æðar, efri tönn með öfughjartalaga viðhengi, tennur oft purpura, ullhærð. Króna 10-12 mm, dökkpurpura eða blá, flipar stórir.
Uppruni
Miðjarðarhafssvæðið.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning eða sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð á skýldum, hlýjum stað.
Reynsla
Viðkvæm - en tórir í fáein ár.
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja í ræktun erlendis t.d. 'Alba', 'Rosea', 'Atropurpurea' ofl.