Ledum palustre

Ættkvísl
Ledum
Nafn
palustre
Íslenskt nafn
Mýraflóki
Ætt
Lyngætt (Ericaceae).
Lífsform
Sígrænn runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Síðla vors.
Hæð
0,3-1,2 m
Vaxtarlag
Uppréttur eða útafliggjandi sígrænn runni.
Lýsing
Uppréttur eða útafliggjandi-uppsveigður, sígrænn runni, 30-120 sm hár. Ungir sprotar með ryðbrúna ullhæringu. Lauf 12-50 × 1,5-12 mm, bandlaga til oddbaugótt-aflöng, mjög innundin, dökk eða mattgræn ofan, ryðbrún hæring á neðra borði. Blómin mörg, í þéttum endastæðum klösum, blómleggir 5-25 mm, með kirtla, oft með ryðbrúna hæringu á meðan þau eru ung. Bikar tenntur krónublöð 4-8 mm, hvít, öfugegglaga, útstæð, eggleg kirtil-vörtótt, fræflar 7-10, aldin um 5 mm, egglaga.
Uppruni
N og M Evrópa, N USA.
Harka
2
Heimildir
= 1,http://www.backyardgardener.com
Fjölgun
Sáning, síðsumargræðlingar með undirhita, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í beð með raka, súra mold.
Reynsla
Plöntunum var sáð 1991 og allar gróðursettar í beð 2001. Yfirleitt ekkert eða lítið kal gegnum árin, blóm af og til.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Vex helst í rökum mómoldarjarðvegi og í Sphagnum mýrum.