Leontopodium discolor

Ættkvísl
Leontopodium
Nafn
discolor
Íslenskt nafn
Flekkuhíma
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulhvítur/hvítgrá háblöð.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
25 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 25 sm há.
Lýsing
Lauf allt að 6 sm, lensulaga eða band-lensulaga, skúmhærð eða hárlaus á efra borði, hvítdúnhærð á því neðra. Blómskipunin þétt hvít-dúnhærð ofan, minna hærð á neðra borði, stjarnan allt að 7 sm í þvermál. Körfur allt að 7 mm í þvermál, smáreifar dúnhærðar. Aldin hárlaus.
Uppruni
Japan, SA Kína, Kórea.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori, sáning.
Notkun/nytjar
Í beðjaðra, í steinhæðir.
Reynsla
Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur. Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur.