Leontopodium japonicum

Ættkvísl
Leontopodium
Nafn
japonicum
Íslenskt nafn
Gljáhríma
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulhvítur/hvítgrá háblöð.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 50 sm há. Stönglar uppréttir.
Lýsing
Lauf allt að 7 sm, mjó- og egg-lensulaga, hvassydd, blómskipunarlauf mörg, egglaga eða aflöng, með fölgrá hár. Stjarnan allt að 4 sm, eða eru í allmörgum stjörnulaga hálfsveipum allt að 10 sm í þvermál. Körfur allt að 5 mm í þvermál. Smáreifablöð með fölgrá lauf, snubbótt. Aldin hárlaus eða þétthærð.
Uppruni
Japan, A Kína, Kórea
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori, sáning.
Notkun/nytjar
Í beðkanta, í steinhæðir.
Reynsla
Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur, myndirnar eru teknar þar.