Leucanthemopsis alpina

Ættkvísl
Leucanthemopsis
Nafn
alpina
Íslenskt nafn
Fjallabrá
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Samheiti
Crysanthemum alpinum
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur / gul hvirfingarblóm.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
5-15 sm
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur eða fjölæringur sem myndar breiður. Stönglar allt að 15 sm, uppsveigðir.
Lýsing
Lauf allt að 4 sm, oftast grunnlauf, egglaga til spaðalaga, bogtennt til fjaðurskert eða handskert, gráhærð eða hárlaus. Körfur allt að 4 sm í þvermál. Geislablóm 8-12, hvít, verða stundum bleik. Hvirfilblóm appelsínugul.
Uppruni
Alpa-, Pyrenea-, Karpata-, Balkanfjöll.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð.
Reynsla
Harðgerðar og álitlegar steinhæðaplöntur, í uppeldi á Reykjum og virðast dafna prýðilega (H. Sig.).
Yrki og undirteg.
ssp. tomentosa (Lois.) Heyw. Mjög smávaxin jurt. Laufin egglaga, handskift, með 5-7, þéttstæða flipa.