Leucanthemum vulgare

Ættkvísl
Leucanthemum
Nafn
vulgare
Íslenskt nafn
Freyjubrá
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Samheiti
Chrysanthemum leucanthemum
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur / gul hvirfingarblóm
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
70-100 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt. Stönglar allt að 100 sm háir, greinóttir eða ógreindir.
Lýsing
Grunnlauf 1,5-10 sm, öfugegglaga-spaðalaga til aflöng, oftast bogtennt, á löngum lauflegg. Stöngullauf aflöng til lensulaga, heil eða fjaðurskert, græn eða bláleit, efstu laufin legglaus. Körfur 2,5-9 sm í þvermál, venjulega með tungukrónur, stakar eða í þyrpingum. Smáreifablöð lensulaga til egglaga-aflöng, jaðrar oftast dökkir og himnukenndir, geislablóm hreinhvít, stöku sinnum stutt eða engin. Svifhárakrans enginn eða á ytri aldinum króna eða aðeins eyrnablöð.hvirfingablóm gul
Uppruni
Evrópa, Altaifjöll, slæðingur í N-Ameríku.
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning (sáir sér oft allnokkuð út).
Notkun/nytjar
Í beð ( á við um yrkin), í blómaengi, í sumarbústaðaland.
Reynsla
Hargerð, talin slæmt illgresi erlendis þar sem hún sáir sér þar ótæpilega, hentar vel í beð með bláklukkum, roðafífli og fleiri tegundum.
Yrki og undirteg.
'Maistern' gamalt yrki, allt að 60 sm hátt, 'Maikönigin' allt að 70 sm hátt, bæði yrkin eru snemmblómstrandi, 'Rheinblick' allt að 90 sm hátt, blómstönglar ógreindur, blómríkt yrki.