Leucojum aestivum

Ættkvísl
Leucojum
Nafn
aestivum
Íslenskt nafn
Klausturlilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
30-40 sm
Vaxtarlag
Laukur allt að 4 sm. Lauf ól-laga, um 40 × 1,5 sm. Blómstöngull um það bil jafn langur og laufin, holur, með 2 vængi, stoðblað 1,3-5 sm, grænt.
Lýsing
Sveipur með 3-5 (sjaldan 7) blómum, blómhlífarblöð 1,5-2 sm, hvít með græna enda. Fræ svart, ekki með sepa. Lýsingin hér að ofan á við um dæmi gerðu tegundina ssp. aestivum.
Uppruni
V, M & S Evrópa, austur í Tyrkland og Kákasus.
Harka
4
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Hliðarlaukar, laukar lagðir í september á 6-8 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í beð þar sem ekki frýs.
Reynsla
Þrífst best þar sem jarðvegurinn frýs ekki, lifir upp við gróðurhúsið og blómsrar þar.
Yrki og undirteg.
Kröftugur stórblóma klón af ssp. aestivum er ræktaður undir nafninu ´Gravetye´.