Lewisia brachycalyx

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
brachycalyx
Íslenskt nafn
Fingrablaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Sumargræn, fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur (hvítbleikur).
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 10 sm
Vaxtarlag
Lágvaxinn, næstum stöngullaus, lauffellandi fjölæringur, lægri en 10 sm þegar hann blómstrar, með laufabrúsk við grunninn.
Lýsing
Grunnlaufin 3-8 × (0,2-)0,5-1,5(-2.2) sm, öfuglensulaga, mattgræn, ögn blágræn. Blómskipunin er 3-6 sm í þvermál, með allmarga hálf-jarðlæga til hálf-upprétta, einblóma leggi, 1-6 sm langa, blómin legglaus. Bikarblöð 2,4-9 sm, krónublöðin 5-9 talsins, 12-26 mm, öfugegglaga, hvít eða stöku sinnum með bleikar æðar eða alveg hvítbleik. Fræflar 10-15 talsins.
Uppruni
S Kalifornía, Arizona, mögulega líka S Utah og Nýja-Mexikó.
Harka
5
Heimildir
1,22
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta.
Reynsla
Þrífst vel, heldur sér við með sáningu, myndar breiður með tímanum.
Yrki og undirteg.
Lewisia Phyllellia (L. brachycalys × L. cotyledon). Blómin fölbleik með rósbleikar rákir á stuttum stilkum.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Náttúrulegir vaxtarstaðir eru fjallaengi í 1370-2450 m h.y.s., þar sem jarðvegur er sendinn og rakur á vissum tímum ársins.