Lewisia cotyledon

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
cotyledon
Ssp./var
v. howellii
Höfundur undirteg.
(S. Watson) Jeps.
Yrki form
'Rose Splendour'
Íslenskt nafn
Stjörnublaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Sumargræn, fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fölbleikur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 30 sm
Vaxtarlag
Sígrænn fjölæringur, allt að 30 sm hár í blóma, með lauf sem mynda þétta, flata, sammiðja hvirfingu, sem er allt að 30 sm í þvermál.
Lýsing
Blómin fölbleik.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skriðubeð, í hlaðna steinveggi. Gott er að setja möl kringum rótarhálsinn svo að vatn renni frá honum og valdi ekki rotnun.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigarðinum, ber falleg blóm og sáir sér dálítið.