Lewisia cotyledon

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
cotyledon
Ssp./var
v. howellii
Höfundur undirteg.
(S. Watson) Jeps.
Íslenskt nafn
Stjörnublaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Sígræn, fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikpurpura með fölar og dökkar rákir.
Blómgunartími
Maí-Júlí.
Hæð
- 30 sm
Vaxtarlag
Sígrænn fjölæringur, allt að 30 sm hár í blóma, með lauf sem mynda þétta, flata, sammiðja hvirfingu, sem er allt að 30 sm í þvermál.
Lýsing
Jaðrar laufa eru mjög hrokknir eða bylgjaðir. Krónublöð 12-15 mm.
Uppruni
NV Kalifornía, SV Oregon.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í hlaðna grjótveggi.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigarðinum, ber falleg blóm og sáir sér dálítið.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR.Náttúrulegir vaxtarstaðir: Klettasprungur, og grýttir staðir í 150-400 m h.y.s.