Lewisia cotyledon

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
cotyledon
Yrki form
Soranda
Íslenskt nafn
Stjörnublaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Sígræn, fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ýmsir litir.
Blómgunartími
Maí-júlí.
Hæð
- 30 sm
Vaxtarlag
Sígrænn fjölæringur, allt að 30 sm hár í blóma með lauf sem mynda þétta, flata, sammiðja hvirfingu, sem er allt að 30 sm í þvermál.
Lýsing
Sígrænn fjölæringur sem myndar blaðhvirfingar með kjötkenndum, glansandi, dökkgrænum laufum, 25-30 sm hár í blóma. Myndar falleg stjörnulaga blóm frá því síðla vors og fram eftir sumri. Blómin eru í blönduðum litum.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
1, http://www.kerneliv.dk
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Afbragðs planta í steinhæðir eða í útiker. Verjið plönturnar gegn vetrarbleytu. Gott er að setja möl kringum rótarhálsinn til að halda vatninu frá og koma í veg fyrir að rótarhálsinn rotni og plantan deyi.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigarðinum, ber falleg blóm og sáir sér dálítið.