Lewisia cotyledon

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
cotyledon
Yrki form
Ashwood Strain Magenta
Íslenskt nafn
Stjörnublaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Sígræn, fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skær purpurableikur.
Blómgunartími
Maí-júlí.
Hæð
- 25 sm
Vaxtarlag
Sígrænn fjölæringur, allt að 30 sm hár í blóma með lauf sem mynda þétta, flata, sammiðja hvirfingu, sem er allt að 30 sm í þvermál.
Lýsing
Fjölæringur með sígræn, þykk, dökkgræn hvirfingarlauf og granna stöngla með 2,5 sm breið, skærpurpurableik, ilmandi blóm í toppinn. Verða um 20-25 sm háir.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
1, http://www.anniesannuals.com, http://www.ashwoodnurseries.com
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Plantan er aðlöguð þurrum sumrum svo að hún þolir takmarkað vatn að sumrinu. Gott er að setja möl kringum rótarhálsinn til að halda vatninu frá og koma í veg fyrir að rótarhálsinn rotni og plantan deyi. Þarf mjög góða framræslu, hentug í steinhæðir, skriðubeð, þurra grjótveggi, ker.Glæsileg þegar hún er gróðursett í ker eða í sprungur í steinveggi.Mjög hófleg vökvun.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigarðinum, ber falleg blóm og sáir sér dálítið.