Lewisia nevadensis

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
nevadensis
Íslenskt nafn
Engjablaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Lauffellandi fjölæringur.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur-bleikleitur.
Blómgunartími
Maí-ágúst.
Hæð
- 15 sm
Vaxtarlag
Nærri legglaus, lauffellandi fjölæringur, allt að 15 sm hár í blóma. Hálfupprétt laufin mynda gisna brúska. Laufin vaxa upp af stuttum stöngulstofni og keilulaga eða næstum hnöttóttri oft greinóttri, kjötkenndri stólparót.
Lýsing
Grunnlauf mjó-bandlaga eða bandlaga-öfuglensulaga, 4-15 sm löng, 2-6 mm breið snubbótt eða sljóydd, kjötkennd, venjulega lengri en blómskipunin. Blómskipunin allmargir, sterklegir, einblóma blómskipunarleggir, neðri hluti blómskipunarleggsins er neðanjarðar, en með allt að 10 sm ofanjarðar, hálfuppréttir í fyrstu en verða síðan láréttir eða niðurstæðir með aldrinum. Stoðblöð 2, græn eða himnukennd á jöðrunum, gagnstæð, bandlensulaga, 6-18 mm löng, heilrend, ydd, samvaxin neðst, oft sveigð inn á við og lykja þar með um blómlegginn. Blómleggir sterklegir, 1-4 sm langir. Blómin 2-3,5 sm í þvermál. Bikarblöð 2, breiðegglaga, 5-13 mm löng. Krónublöð 5-10, hvít eða sjaldan bleikleit, oddbaugótt eða öfuglensulaga, 10-15(-20) mm löng, um 4 mm breið, bogadregin eða broddydd, breytileg að stærð í sama blóminu. Fræflar 6-15 talsins. Stíll skiptist í 3-6 greinar. Hýði egglaga, 5-10 mm löng. Fræin mörg næstum hnöttótt, svört, um 1,3 mm löng, glansandi, göddótt.
Uppruni
Washington til Nýju Mexikó, V Kólóradó, og líklega líka í Idaho, Wyoming, Utah og Arizona.
Harka
4
Heimildir
= 1, 22
Fjölgun
Skipting, sáning, þroskar fræ árlega.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, kanta á skrautblómabeðum.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til plöntur frá 1987, en líka yngri. Þrífast vel, bera mikið af blómum og halda sér við með sáningu, myndar breiður.Harðgerð planta, þolir illa bleytu að vetri, þarf gott frárennsli.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Vaxtarstaðir úti í náttúrunni eru rakir, sendnir eða malarbornir, rakar grasbrekkur og engi nálægt uppsprettum.