Lewisia rediviva

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
rediviva
Íslenskt nafn
Huldublaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Sígræn, fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur eða bleikleitur.
Blómgunartími
Maí--júlí.
Hæð
- 5 sm
Vaxtarlag
Lauffellandi, legglaus fjölæringur allt að 5 sm hár í blóma, laufin mynda þéttan brúsk snemma vors (ekki reglulegar hvirfingar), deyja svo á blómgunartímanum eða fyrir hann, vaxa upp af stuttum ógreindum eða greindum stöngulstofni og eru með kjötkennda, greinótta stólparót.
Lýsing
Laufin mörg, bandlaga eða kylfulaga, hálfsívöl, 1,5-5 sm löng, 2-3 mm breið, snubbótt eða hálfydd, legglaus en með breiðan hálfglæran grunn, kjötkennd, heilrend, visna um leið og blómin birtast. Blómskipunin úr einblóma blómstönglum, blómskipunarleggirnir 1-3 sm langir. Engin stöngullauf. Stoðblöð 4-7(-8) í krönsum, sýllaga eða bandlensulaga, 4-10 mm löng, himnukennd. Blómleggir (10)3-15(-30) mm langir með liðamót rétt ofan við stoðblöðin, brotna auðveldlega af að blómgun lokinni. Blómin 5-6(-7,5) sm í þvermál. Bikarblöð 4-(6-9) talsins, misstór, skarast, hvít eða bleikleit, með græna eða purpuraleita miðtaug, breið-oddbaugótt eða egglaga, bogadregin, 10-25 mm löng, heilrend eða trosnuð. Krónublöð 12-19 talsins í mismunandi blæbrigðum af rósbleiku og purpurableiku eða hvít, oddbaugótt, aflöng eða mjó-öfuglensulaga 15-35 mm löng, snubbótt þverstýfð eða bogadregin, heilrend eða trosnuð í oddinn. Fræflar 20-50 talsins, með frjóþræðina samvaxna neðst. Stíll djúpklofinn í 4-9 hvítar eða fölbleikar greinar. Hýði egglaga 5-6 mm löng. Fræ 8-25 talsins, svört eða dökkbrún, hnöttótt-nýrlaga, 2-2,5 mm löng, ögn nöbbótt, glansandi.
Uppruni
Kanada, Bandaríkin.
Harka
4
Heimildir
= 1,22
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta skrautblómabeða.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum 2012, en hefur verið sáð.Viðkvæm-meðalharðgerð jurt, þolir illa vetrarumhleypinga en ef henni er skýlt fyrir þeim er allt í lagi með hana utandyra. Mest ræktuð í pottum inni í gróðurhúsum (HS).
Yrki og undirteg.
ssp. redivivaLauf bandlaga, hálfsívöl. Blómleggir meira en 1 sm langir. Bikarblöð meira en 15 mm löng. Krónublöð 18-35 mm löng. Fræflar 30-50 talsins. ---ssp. minor (Rydberg) Holmgren Laufin kylfulaga til mjó-öfuglensulaga, með gróp eftir efra borði, bogadregin í oddinn. Blómleggir (1)3-8 mm langir. Bikarblöð yfirleitt 10-12 mm löng, sjaldan allt að 15 mm langir. Krónublöð 15 mm löng. Fræflar 20-30 talsins.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR.Náttúrulegir vaxtarstaðir eru gróðurlitlir malarbornir og grýttir staðir í 750-1850 m h.y.s. (ssp. rediviva).Náttúrulegir vaxtarstaðir eru þurrir, grýttir staðir í 1980-2745 m h.y.s. (ssp. minor).