Lewisia tweedyi

Ættkvísl
Lewisia
Nafn
tweedyi
Íslenskt nafn
Rósablaðka
Ætt
Grýtuætt (Portulacaceae).
Lífsform
Sígræn, fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleik-aprikósulitur til gulleitur.
Blómgunartími
Maí-júlí.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Sígrænn, næstum legglaus, lágvaxinn fjölæringur, 10-20 sm hár á blómgunartímanum, grunnlauf myndar strjála brúska, stöngulstofn er stuttur með langar, þykkar, kjötkenndar rætur. Stöngulstofninn greinist með aldrinum og myndar allmargar krónur.
Lýsing
Grunnlauf græn, oft með purpura slikju, breið öfuglensulaga eða öfugegglaga, 4-8 sm löng, 25-50 mm breið, kjötkennd, heilrend, flöt eða ögn greipt, bogadregin, snubbótt eða framjöðruð, mjókka að vængjuðum blaðlegg, 2-5 sm löngum, myndar ekki áberandi sammiðja blaðhvirfingu. Blómskipunin með allmarga blómstöngla, 10-20 sm langa hver með 1-4(-8) blóm, venjulega lauflaus, en stundum með 1-2 smækkuð stoðblaðalík lauf við grunninn. Stoðblöð stakstæð, breiðlensulaga, 5-10 mm löng, himnukennd, heilrend, styðja greinar í blómskipuninni. Blómin 4-5,5(- 7) sm í þvermál. Blómleggir sterklegir, kjötkenndir, 2-6(-8,5) sm langir. Bikarblöð 2, breiðegglaga. 9-10 mm löng, bogadregin, snubbótt eða hálfydd, heilrend eða með örsmáar tennur, himnukennd, stundum með purpura slikju. Krónublöð (7-)8-9(-12), bleik-aprikósulit til gulleit eða sjaldan hvít, öfugegglaga, 2,5-4 sm löng. Fræflar 10-23. Stíll greinist í 3 stuttar greinar. Hýði egglaga, dálítið þríhyrnd, 7-10 mm löng. Fræ 12-20(-35) talsins, hálfhnöttótt-nýrlaga, um 2 mm löng, áberandi vörtótt og með greinilega dúnhæringu, djúpbrúnrauðan eða svartan, kjötkenndan sepa, sem minnir á hreistur.
Uppruni
Bandaríkin, Kanada.
Harka
5
Heimildir
1, 22
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skrautblómabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til plöntur frá 1975 og einnig yngri, bera stór og falleg blóm. Harðgerð jurt, vatn má alls ekki sitja við rótarhálsinn að vetri. Setjið möl kringum rótarhálsinn svo að vatn renni frá honum og hann rotni ekki.
Yrki og undirteg.
L. tweedyi (A. Gray) Robinson 'Lemon Form' Sígrænt úrvals form með fíngerð, sítrónugul blóm. L. tweedyi (A. Gray) Robinson 'Rosea' Sígræn jurt með frábær djúprósbleik blóm, sem verða gulari að miðju hvers krónublaðs.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Náttúrulegir vaxtarstaðir eru í 600-2135 m h.y.s., það er mjög þurrar granítbrekkur eða syllur, oft í dálitlum skugga, jarðvegur er léttur og með miklu af lífrænum efnum.