Ligularia alatipes

Ættkvísl
Ligularia
Nafn
alatipes
Íslenskt nafn
Vængskjöldur*
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
150 sm
Vaxtarlag
Stönglar uppréttir, allt að 150 sm háir, 1-1,5 sm í þvermál við grunninn, grunnlauf hárlaus ofan hvít skúmhærð-smádúnhærð neðan og stutt gul-mjúkhærð.
Lýsing
Grunnlauf með lauflegg, laufleggur allt að 32,5 sm, með vængi, vængir allt að 5 mm breiðir, grunnur með slíður, jaðrar heilir, laufblaðkan egglaga-hjartalaga, 7-40 sm, 10-17 sm breið neðst, hárlaus eða dúnhærð á æðunum á neðra borði, æðastrengjótt, grunnur hjartalaga jaðrar reglulega tenntir, randhærðir, snubbótt í oddinn, skerðingin breið og grunn, um 1/10 af lengd laufblöðkunni, grunnflipar kringluleitir. Miðstöngullaufin svipuð, en með stuttan legg, leggurinn með væng, vængir smátenntir, slíðrið allt að 10 sm, efri jaðarinn tenntur. Efstu stöngullaufin með stoðblöð með stóran slíðurlegg. Laufblaðkan egglaga eða nýrlaga leggur með slíður, allt að 6 x 7 sm, jaðrar tenntir, fjaður-eða hand-fjaðurstrengjótt. Blómskipunin klasi, allt að 35 sm, stoðblöð lík laufunum egg-lensulaga, þau neðstu allt að 7,5 x 2,5, smærri efst, tennt eða nýrlaga, laufleggur með slíður, blómskipunarleggir grannir, neðst allt að 11 sm, styttri efst, hvít skúm-dúnhærðir. Körfurnar margar, auka-stoðblöð mjó-lensulaga, 1-1,5 sm, lengri en reifarnar, heilrend eða tennt. Blómskipunin breið-bjöllulaga, 8-11 x um 10 mm, hárlaus á ytra borði eða hvít skúm-dúnhærð, smáreifar 10 eða 11, í tveim röðum, aflöng, 4-5 mm breið, jaðar með breiða brúna himnu, oddur breið-þríhyrndur. Geislablóm gul, blaðkan bandlaga, 30-40 x 2-3 mm, hvassydd, pípan um 5 mm. Pípukrýndu blómin mörg, um 8 mm, pípan um 4 mm, tungan breiðbjöllulaga. Svifhárakransinn hvítur, jafn langur og krónan.
Uppruni
SV Sichun, NV Yunnan.
Heimildir
= http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=200024190
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð.
Reynsla
Í M10-A09 20020221