Ligularia alpigena

Ættkvísl
Ligularia
Nafn
alpigena
Íslenskt nafn
Háfjallskjöldur
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 140 sm
Vaxtarlag
Plantan er grágræn. Stönglar uppréttir, 22-140 sm háir, 3-10 mm í þvermál við grunninn, hárlaus. Blómskipunin er stutthærð.
Lýsing
Grunnlauf með legg, leggurinn purpurarauður, 2,5-25 sm, hárlaus, grunnslíður, efri hlutinn með mjóa vængi, laufblaðkan aflöng eða breið oddbaugótt 4,5-20 x 2,3-10,5 sm, hárlaus, fjaðurstrengjótt, með áberandi æðastrengi á neðra borði, fleyglaga við grunninn, mjókka að leggnum, jaðrar óreglulea tenntir, oddur bogadreginn til hvassyddur. Mið- til efstu laufin lík en legglaus, allt að 12 x 7 sm, minni efst, grunnur hálgreipfætt. Blómskipunin klasi, sjaldan skúfur, 4-6(-45 sm, þau efstu í blómhnoðum, þau neðstu greinótt, lotin, greinar 1,5-12 sm, hver með 2-23 körfur, stoðblöð lík laufblöðum eða mjög smá, band-sýllaga, 5-7-m. Blómskipunarleggur 2-4 sm. Körfur margar. Reifar bjöllulaga eða hálf-skállaga, 6-7 x 5-6 mm, ytraborð með þétt, stutt gul hár. Nærreifar 6-8, í 2 röðum, aflöng eða egglaga, 3-5 mm breið, hvassydd eða snubbótt, innri reifablöð með himnukennda jaðra. Geislablóm gul, tungan öfugegglaga eða aflöng, 7-10 x 3-4 mm, snubbótt, pípan um 4 mm. Pípukrýndu blómin mörg, 6-7 mm, pípan 2-2,5 mm. Fræhnetur gulleitar, sívalar, 4-5 mm. Svifhárakrans hvítur, jafn langur og pípukrýnda krónan.
Uppruni
Xinjiang, NA Afghanistan, Kyrgyzstan, N Pakistan, Tajikistan, Uzbekistan.
Heimildir
= Flora of China, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=200024191
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, sem stakstæðar plöntur.
Reynsla
Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur, myndirnar eru teknar þar.