Ligularia sibirica

Ættkvísl
Ligularia
Nafn
sibirica
Íslenskt nafn
Dísarskjöldur
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Fagurgulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
100-150 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 150 sm há, oft með purpura slikju.
Lýsing
Grunnlauf allt að 25 x 20 sm, þríhyrnd-nýrlaga til hálf-örlaga, tennt, næstum hárlaus, þétthærð á neðra borði. Stöngullauf minni, fá, efri laufin mjórri, næstum legglaus. Körfur margar, um 3 sm í þvermál, í lotnum, blöðóttum klösum, stoðblöð bandlaga til lensulaga. Reifar allt að 20 mm, með 2 bandlaga stoðblöð jafnlöng reifunum. Stöðblöð 8-10, lensulaga. Geislablóm 7-11, gul, allt að 20 x 5 mm. Hvirfingsblóm mörg Aldin 4-6 mm, svifhárakrans gráhvít, lengri en fræin.körfur eru um 4cm í Þm og standa þétt saman í stuttum klasa blöðin fremur þynn og nánast þríhyrnd hjartalaga með langar hvassar tennur
Uppruni
M & S Evrópa, Úralfjöll, Síbería - Japan.
Harka
3
Heimildir
= 4, 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum, við tjarnir og læki, sem undirgróður.
Reynsla
Harðgerð en blómstar ef til vill ekki alveg á hverju ári norðanlands, þrífst best í rökum jarðvegi (H. Sig.).