Ligularia veitchiana

Ættkvísl
Ligularia
Nafn
veitchiana
Íslenskt nafn
Tröllaskjöldur
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 180 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 180 sm há.
Lýsing
Grunnlauf allt að 30 x 35 sm, þríhyrnd-hjartalaga, tennt, skærgræn, laufleggir hálfsívalir, ekki holir innan. Körfur allt að um 6,5 sm í þvermál, margar, blómskipunarleggir með stoðblöð, ytri stoðblöð laufótt, þekja körfurnar fyrir blómgun, innri stoðblöð 2, bandlaga, styttri en reifarnar. Geislablóm 8-12, allt að 2,5 sm, skærgul, hvirfingalblóm mörg. Aldin sívöl hárlauf. Svfhárakrans styttri en hvirfingablómin, gráleitur til purpuramenguð.
Uppruni
V Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori, sáning að vori.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum, við tjarnir og læki, sem undirgróður.
Reynsla
Harðgerð, þrífst vel í Lystigarðinum.