Ligusticum mutellinoides

Ættkvísl
Ligusticum
Nafn
mutellinoides
Íslenskt nafn
Dvergahvönn
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur til bleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
5-30 sm
Vaxtarlag
Stöngull ógreindur, næstum lauflaus, allt að 30 sm, næstum trefjalaus neðst eða alveg trefjalaus. Lauf allt að 10 sm , 2-3 fjaðurskipt, flipar bandlensulaga, 2-5 mm.
Lýsing
Sveipir með 8-20 geisla, reifablöð 5-20, oft í 3 hlutum. Smáreifablöö svipuð. Blómin hvít til bleik. Aldin oddvala, 3-5 mm, klofaldin með slétta hryggi.
Uppruni
Fjöll í M Evrópu.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í skrautblómabeð.
Reynsla
Óx í nokkur ár í Lystigarðinum en ekki lengur 2015, hefur verið sáð 2014.