Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Garden King'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður og í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Appelsínulitur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
allt að 100 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Lík Lilium 'Enchantment'. Blómin eru appelsínugul, mörg saman á stöngulendanum
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Harka
5
Heimildir
1, Upplýsingar af umbúðunum.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum, en ekki alveg upp við vegg, þar verður of þurrt. Jarðvegur þarf að vera vel framræstir, frjór og hæfilega rakur, ekki of þungur, með mikið af lífrænum efnum.Laukarnir eru gróðursettir 15 sm djúpt með 30 sm millibili. Laukar eru látnir vera á sínum stað og blómstra þar ár eftir ár. Mælt er með að setja t.d. lauf yfir moldina svo að hún haldi rakanum betur. Klippið dauð blóm af en látið stönglana standa áfram.Liljan er höfð í blönduð beð og beðkanta.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1995, blómstraði mikið 2010 og var komin með marga nýja stilka.