Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Elfin Sun'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
80-90 sm
Vaxtarlag
Laufóttir stönglar, allt að 80-90 sm háir.
Lýsing
Blómin eru meðalstór, gul, vita upp á við.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Harka
5
Heimildir
1,Upplýsingar af umbúðunum, http://www.blueridgegardens.ca, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.
Notkun/nytjar
Gróðursetjið laukana 20-30 sm millibili. Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur. Jarðvegur þarf að vera frjór og vel framræstur. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1990, hefur þrifist vel 2002, blóm árlega, lifir 2010.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.