Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Chinati'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur (eða í hálfskugga) og í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt.
Blómalitur
Fölbleikur til bleikur.
Blómgunartími
September-október.
Hæð
(60)-90-(120) sm
Lýsing
Blómin eru trektlaga, vita upp á við, eru fölbleik til bleik. Stönglarnir eru (60)-90-(120) sm háir, sterklegir og uppréttir með bleika slikju efst. Lauf haldast græn allt sumarið. Plantan er um 45 sm.breið.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðunum, http.//www.shelmerdine.com, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum og laukhreistrum. Þar að auki er hægt að sá fræi beint að haustinu úti eða að fræi er sáð í potta í sólreit eða kalt gróðurhús. Þegar fræi af liljum er safnað eru fræhulstrin látin þorna á plöntunni, opnið þau síðan og safnið fræinu.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur (eða í hálfskugga) og í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun á blómgunartímanum en ekki of mikla. Jarðvegur þarf að vera frjór, ríkur af lífrænum efnum og vel framræstur. Laukarnir eru gróðursettir með 20-30 (45) sm millibili í beð eða beðjaðra. Góð í blönduð fjölæringabeð, einnig er hægt að gróðursetja marga lauka saman og fá breiðu. Hættir til að verða lauflaus á neðstu 30 sm stönglanna og því ætti að gróðursetja lágvaxnar tegundir næst henni. Vex hratt og vel og það má búast við að hún lifi a.m.k. 10 ár. Nokkuð þolin gagnvart stórborgarmengun. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt efni yfir moldina til að halda betur rakanum í henni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og þeir blómstra ár eftir ár.Góð til afskurðar.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 2000, blómstrar árlega, blóm í lok september 2010, er nú með 2-3 stilka.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.