Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Roma'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur (eða í hálfskugga) í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Fölgulur með ljósgrænt gin.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
(60-90) 120 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Stönglar stinnir, hávaxnir, verða (60-90) 120 sm háir og eru með brúnar doppur efst. Laufin eru mjó, dökkgræn, glansandi, haldast græn allt sumarið. Blómin eru bollalaga, fölgul með ljósgrænt gin, 76-150 mm breið, vita upp á við, í glæsilegum blómklösum. Blómhlífarblöðin eru breið og aftursveigð.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Sjúkdómar
Viðkvæm fyrir skordýrum o. fl. og það ætti að verja fyrir bjöllulirfum, bjöllum, sniglum og blaðlús.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðunum, http://www.davesgarden.com, http//www.greenfingers.com, http//www.shelmerdine.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum. Oftast fjölgað með laukum sem myndast neðanjarðar.Myndar ekki fræ, blómin ófrjó eða að fræ slær til baka eða það slær til baka, þ.e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur (eða í hálfskugga) í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Jarðvegur þarf að vera frjór, ríkur af lífrænum efnum og vel framræstur. Laukarnir eru gróðursettir með 30-40 sm millibili í beð eða beðjaðra. Góð í blönduð fjölæringabeð einnig er hægt að gróðursetja marga lauka saman og fá breiðu. Stönglunum hættir til að verða lauflaus á neðstu 30 sm og því ætti að gróðursetja lágvaxnar tegundir næst plöntunni. Betra er að grunnur plöntunnar sé í skugga. Hentug til að rækta í kerum.Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár. Vex hratt og vel og það má búast við að hún lifi a.m.k. 10 ár. Þolir stórborgarmengun nokkuð vel.Mjög góð til afskurðar.
Reynsla
Laukur var gróðursettur í Lystigarðinn 2003, blómstraði í september 2010 og hafði myndað marga stöngla síðan 2003.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.