Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Yellow Blaze'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga.
Blómalitur
Skærgulur með hnetubrúnum doppum.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
120-180 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Lilium Yellow Blaze er miðlungi kröftug lilja, fögur planta að gróðursetja meðal runna og í fjölæringabeð.Blómin eru í sveip, ilmlaus, flöt, 150-300 mm breið, skærgul með hnetubrúnum doppum, blómin vita upp á við. Stönglar eru 120-180 sm háir. Lauf eru meðalstór, græn.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
http://www.davesgarden.com, http://www.backyardgardener.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.
Notkun/nytjar
Gróðursetjið laukana með 20-30 sm millibili. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega, jafna vökvun einkum á meðan á blómgun stendur en vökvun má ekki vera of mikil. Dauð blóm eru klippt af en stönglarnir látnir standa fram eftir hausti meðan laufið er grænt. Þá má klippa þá niður, skilja eftir nokkra sm ofan við yfirborð jarðvegsins. Best er að flytja plöntuna að hausti eða vori. Blóm standa lengi og eru fögur.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1989, plantan þreifst t. d. vel 2002 og bar blóm og knúbba í ágúst-september 2010 og hafði myndað marga nýja stöngla síðan 1989.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.