Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Menton'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur. Asiatic hybrid Mid-Century blendingur.
Kjörlendi
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Kóralbleikur-apríkósugulur, með doppur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
60-90 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Blómin eru kóralbleik-apríkósugul, doppótt, flöt, 76-150 mm eða 151-300 mm, vita uppávið blómhlífarblöðin eru baksveigð. Stönglar eru 60-90 sm háir. Laufblöðin slétt.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðunum, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.Myndar ekki fræ, blómin ófrjó, eða að fræ slær til baka eða það slær til baka, þ.e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum, en ekki upp fast við vegg, þar sem verður allt of þurrt og heitt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Jarðvegur þarf að vera frjór og vel framræstur. Gróðursetjið laukana 15 sm djúpt og með 20-40 sm millibili. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina svo að hún haldi betur rakanum. Dauð blóm eru fjarlægð en stönglar látir standa. Laukar eru látnir vera á sínum stað og þeir blómstra ár eftir ár.Plantað í beð og beðkanta, einnig í ker t.d. á svölum. Góð til afskurðar.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1992, þreifst vel 2002, lifir 2010.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.