Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Odeon'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Trompetliljublendingur (Trumpet lily Aurelian hybrid).
Kjörlendi
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Hreinhvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
100 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar, 1000 sm háir.
Lýsing
Blómin trektlaga, hreinhvít.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðunum, http://www.answers.yahoo.com, http://www.tonkinsbulbs.com.au, http://www.plantfinde.sunset.com, http://www.americanmeadows.com
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana 15 sm djúpt með 20 sm millibili í blönduð beð eða beðkanta, einnig í ker t. d. á svalir. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.
Reynsla
Laukur var keyptur og plantað í Lystigarðinn 1992, rétt tórði 2003, dó 2004.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Trompetliljublendingar (stundum nefndir Árelíublendingar (Aurelian Hybrids) eða önnur nöfn eru notuð), eru stórar, hávaxnar trompetliljur eru komnar af kóngaliljunni (Lilium regale), hvítri, villtri lilju frá Kina, þ. e. þær eru upprunnar úr víxlfrjóvgun L. regale, L. sulphureum eða L. sargentiae × L. henryi og L. aurelianse nefna sumar heimildir (en hvorki L. auratum né L. speciosum). Blómin eru trektlaga eða skállaga, vita út á við eða dálítið niður á við og ilma oftast mikið, oft sérstaklega mikið á nóttunni. Allar trompetliljurnar eru dásamlegar til afskurðar. Þær verða hávaxnar og oft þarf að binda við þær, þar sem fullvaxinn stöngullinn getur borið meira en 15 stór blóm. Blómlitir eru hvítir og rjómalit yfir í gult og bleikt, margar með græna, brúna eða purpuralita slikju á ytri borði. Plönturnar eru oftast 90-180 sm há, hver stöngull ber 6-15 blóm.