Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'African Queen'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Trompetliljublendingur (Trumpet lily Aurelian hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður og í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Sterk aprikósulitur.
Blómgunartími
September.
Hæð
90-120 sm
Vaxtarlag
Stönglar allt að 90-12 sm háir.
Lýsing
Blómin eru stór, trektlaga, 150-200 mm breið, ilma, sterk apríkósulit, vita út á við.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
1, http://www.davesgarden.com, Upplýsingar af umbúðum, http://www.answers.yahoo.com, http://www.tonkinsbulbs.com.au, http://www.plantfinde.sunset.com, http://www.americanmeadows.com
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum eða laukhreistrum.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Laukarnir eru gróðursettir með 45-60 sm millibili í beð eða beðjaðra. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.Góð til afskurðar
Reynsla
Reyndist skammlíf. Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1991 og dó 1994.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Trompetliljublendingar (stundum nefndir Árelíublendingar (Aurelian Hybrids) eða önnur nöfn eru notuð), eru stórar, hávaxnar trompetliljur eru komnar af kóngaliljunni (Lilium regale), hvítri, villtri lilju frá Kína, þ. e. þær eru upprunnar úr víxlfrjóvgun L. regale, L. sulphureum eða L. sargentiae × L. henryi og L. aurelianse nefna sumar heimildir (en hvorki L. auratum né L. speciosum). Blómin eru trektlaga eða skállaga , vita út á við eða dálítið niður á við og ilma oftast mikið, oft sérstaklega mikið á nóttunni. Allar trompetliljurnar eru dásamlegar til afskurðar. Þær verða hávaxnar og oft þarf að binda við þær, þar sem fullvaxinn stöngullinn getur borið meira en 15 stór blóm. Blómlitir eru hvítir og rjómalit yfir í gult og bleikt, margar með græna, brúna eða purpuralita slikju á ytri borði. Plönturnar eru oftast 90-180 sm há, hver stöngull ber 6-15 blóm.