Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Casablanca'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
Lilium 'Casa Blanca'
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Austurlandablendingur (Oriental hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Mjallahvítur eða næstum hvít.
Hæð
60-120 sm eða allt að 180 sm
Lýsing
Stönglar 60-120 sm eða allt að 180 sm háir. Blómin bollalaga, 150-300 mm breið, mjallahvít eða næstum hvít, trektlaga, ilma mikið og eru álút eða vita upp á við. Blómhlífarblöð baksveigð. Lauf slétt, glansandi.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
1,Upplýsingar af umbúðum, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með því að skipta laukhreistrum.Ef safna á fræi eru fræhulstrin látin þorna á plöntunni, opnið þau og safnið síðan fræinu.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana með 25 sm millibili í beð eða beðjaðra. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað í beðinu og blómstra ár eftir ár.Góð til afskurðar
Reynsla
Reyndist skammlíf. Laukur var gróðursettur í Lystigarðinn 2003, dauð 2004.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Austurlandablendingar eru þekktar núorðið. Þeir eru í grunninn blendingar Lilium auratum og L. speciosum og þessir blendingar hafa verið víxlfrjóvgaðir með allmörgum liljutegundum frá meginlandi Asíu. Blóm þessara blendinga eru flöt, ilmandi og vita út á við. Plönturnar eru yfirleitt hávaxnar og blómin geta verið mjög stór. Dæmi er hin rauða Star Gazer og hin hvíta Casablanca. Þessi yrki eru nú meðal þeirra vinsælustu í sölu og það er líka auðvelt að rækta þær.