Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Connecticut King'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður og í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Gullgulur-skærgulur en lýsast að oddum blómhlífarblaðanna.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
75 (90-120) sm
Lýsing
Kröftugt yrki, blómin eru 75-150 mm breið, ilmlaus, vita upp á við, eru flöt og stjörnulaga, gullgul-skærgul en lýsast að oddum blómhlífarblaðanna sem eru ögn baksveigðir. Blómin standa lengi og eru góð til afskurðar. Stönglar eru 75 (90-120) sm háir, laufin mjúk.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Sjúkdómar
Hefur mikla mótstöðu gegn sjúkdómum.
Heimildir
1,Upplýsingar af umbúðum, http://www.backyardgardener.com, http://www.green-living-made-easy.com, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum og með laukhreistrum.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Laukarnir eru gróðursettir með 25(40-45) sm millibili í beð eða beðjaðra, 10-15 sm djúpt að hausti eða vori.Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.Ef flytja þarf plöntuna er best að gera það að hausti eða snemma vors. Bindið t.d. bambusprik til stuðnings við stönglana í hvassviðri og mikilli rigningu. Klippið dauð blóm af, en leyfið stönglunum að visna niður að haustinu.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1995, plantan dó 1996. annar laukur var gróðursettur í Lystigarðinn 2003, blómstrar árlega og bar blóm 2010, fáeinir stilkar hafa bættst við frá 2003.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.