Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Corina'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae)
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid, Mid-Century)
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi.
Blómalitur
Dökkrauður með brúnrauðar doppur.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
80-100 sm
Lýsing
Blómin 75-300 mm breið, dökkrauð með brúnrauðar doppur, ilmandi, vita upp á við, blómhlífarblöðin aftursveigð. Laufin slétt, glansandi. Allt að 12 blóm á stöngli.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
http://www.digthedirt.com, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com,http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi. Meðalvökvun, vökvið reglulega. EKKI ofvökva. Gróðursetjið laukana með 20-30 sm millibili. Hentug til að rækta í kerum. Blóm góð til afskurðar.
Reynsla
Reyndist skammlíf. Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1995, löngu dauð.
Yrki og undirteg.
Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem 'Connecticut King' og þekktur rauður blendingur er 'Gran Paradiso'. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.