Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Dimention'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Dökkpurpura til svartur.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
90-120(-130) sm
Lýsing
Blómin eru flöt, dökkpurpura til svört, vita upp á við. Stönglar eru 90-120(-130) sm háir. Laufið blágrænt, slétt og glansandi.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
http://www.davesgarden.com, http://www.vws-flowerbulb.nl, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með laukum blaðöxlunum og með því að skipta laukhreistrum.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana með 15-22 sm millibili. Góð til afskurðar.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 2008, lifir 2010.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.