Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Grand Cru'
Höf.
Vletter & denHaan, 1991
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Djúp- eða skærgulur með dökkrauðbrúnt hjarta innst .
Blómgunartími
September.
Hæð
60-90 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Langlífur fjölæringur, laukplanta og töfrandi tvílit garðalilja.Blómin eru trektlaga, 75-150 mm breið, Ilma, vita upp á við. Blóm djúp- eða skærgul með dökkrauðbrúnt hjarta innst á blómhlífarblöðunum, Stönglar 60-90 sm háir. Lauf blágræn, glansandi.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðunum, http://www.davesgarden,com, http://www.brentandbeckysbulbs.com, http://www.shop.farmfreshliving.com, http://www.answers.yahoo.com,http://www.americanmeadows.com,http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með að skipta jarðstönglum, með hliðarlaukum eða æxlilaukum, einnig með laukhreistrum. Plantan myndar ekki fræ, blómið er ófrjótt eða ný planta verður ekki eins og móðurplantan, fræið slær til baka eins og sagt er.
Notkun/nytjar
Gróðursetjið laukana með 40-45 sm millibili að haustinu fyrir fyrstu frost. Vökvið þegar þið hafið gróðursett laukana. Vökvun í meðallagi, vökvið reglulega, ofvökvið EKKI. Sólríkur vaxtarstaður eða í dálitlum skugga. Stór lilja, planta að hafa bakatil í fjölæringabeðinu, áhrifaríkara að hafa 3-5 lauka saman. Blómstrar árum saman a.m.k. erlendis. Blómin góð til afskurðar. Hentug að rækta í kerum og pottum, einnig hægt að rækta hana innanhúss. Oftast þarf að styðja við stönglanna.
Reynsla
Var keypt í Lystigarðinn 1998 og dó 1999, sama yrki var plantað í garð á Akureyri haustið 1998, tórir og blómstrar af og til. Þyrfti meiri áburð og vökvun.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.