Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Monte Negro'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Djúprauður með satínáferð.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
60-90(-100) sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Stönglar eru 60-90(-100) sm háir, sterklegir, uppréttir. Blómin eru stór falleg, flöt, 76-150 mm og vita upp á við, djúprauð með satínáferð. Blómklasar eru strjálblóma, efst á sterklegum stönglum. Laufið er upp eftir stönglunum, græn-dökkgrænt, glansandi, mjólensulaga, lauf haldast græn allt sumarið. Aldin eru gulgræn eða sandbrún.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðunum, http://www.shelmerdine.com, http://www.learn2grow.com, http://www davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com,http://www.americanmeadows.com,http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlum. Oftast fjölgað með laukum sem myndast neðanjarðar. Myndar ekki fræ, blómin ófrjó, eða það slær til baka, þ. e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur (eða í hálfskugga) og í skjóli fyrir næðingum en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt og heitt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana með 15-20 (40-45) sm millibili. Fallegast er að planta nokkrum laukum saman. Góð í blandað fjölæringabeð. Hættir til að verða lauflaus á neðstu 30 sm og því ætti að gróðursetja lágvaxnar tegundir næst henni.Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í henni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár. Vex hratt og vel og það má búast við að hún lifi a.m.k. 10 ár. Nokkuð þolin gagnvart stórborgarmengun.
Reynsla
Laukar (2 stk.) voru keyptir í Lystigarðinn 2005, blómstruðu mikið í ágúst-september 2010 og höfðu myndað marga nýja stilka síðan 2005, enda á sólríkum stað í beði þar sem vel er borið á og vökvað allt sumarið.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.