Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Star Gazer'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
Lilium 'Stargazer'
Lífsform
Fjölæringur og laukjurt. Asíublendingur (Asiatic hybrid),Mid Century blendingur.
Kjörlendi
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Rauðrófupurpura bleikpurpura með smáar, rauðbrúnar doppur
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
60-90 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Blómin eru trektlaga til skállaga, ilma, vita upp á við, rauðrófupurpura bleikpurpura með smáar, rauðbrúnar doppur í miðjunni. Stönglar eru 60-90 sm háir.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Harka
5
Heimildir
1,Upplýsingar af umbúðum, http://www.davesgardens.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.Myndar ekki fræ, blómin ófrjó eða að fræ slær til baka eða það slær til baka, þ.e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt og heitt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla.Laukarnir eru gróðursettir 15 sm djúpt og með 40-45 sm millibili. Plantað í beð og beðkanta eða í ker t.d. á svalir.Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.Góð til afskurðar.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1992, hefur stundum rétt tórt, kom aðeins með eitt blóm 2010, hefur myndað nokkra nýja stöngla síðan 1992. Þarf meiri áburð og vökvun.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.