Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Sphinx'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Rauð-appelsínulitur, doppótt/nöbbótt.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
60-90 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Stönglar eru 60-90 sm háir. Blómin eru flöt, 76-150 mm, rauð-appelsínulit, doppótt/nöbbótt, vita upp á við. Blómhlífarblöð eru baksveigð.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
http.//www.davesgarden.com,http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com,http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum og með því að skipta laukhreistrum.
Notkun/nytjar
Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana með 20-30 sm millibili. Hentar líka til ræktunar í kerum. Góð til afskurðar.
Reynsla
Laukar (3 stk.) voru keyptir í Lystigarðinn 2005, blómstruðu í ágúst-september og höfðu myndað nýja stöngla. Einn þeirra var á sólríkum stað þar sem vel er borð á og vökvað yfir sumarið og hann blómstraði fyrr en hinir og hafði myndað mun fleiri stöngla en hinir.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.